23.5.2009 | 19:27
Svínaflensan!
Nú er sumarið komið og allir glaðir að koma út í góða veðrið og hittast, en þá þyrmir yfir.
Já nú er betra að fara varlega, svínaflensan er komin.
og hætt við að hún smitist víða og jafnvel í svínin hér á landi en þau hafa verið laus við svínaflensu hingað til.
Sem betur fer virðist flensan ekki vera mjög hættuleg enn sem komið er og því verður maður bara að vona hið besta.
kv. Sjana.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2008 | 18:05
Snjór
Fallegur snjór sem kom í gær, það var ótrúlega jólalegt að horfa út í dag og frekar erfit að halda sig við lesturinn. Óska ykkur öllum góðs gengis á morgun í prófinnu, kv. Sjana.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.11.2008 | 00:55
Kulda kast
Það er búið að vera ansi kalt í dag
ég rakst á þessa skemmtilegu mynd og læt hana fylgja hér með. Í svona kuldanæðing hef ég bara verið inni að mestu og kláraði æfingarprófið í stj. en þá er lokaverkefnið eftir
það er búið að vara heilmikið að gera í vikuni, ég vann eina vakt í Rvk. á lítadeild, svona smá tilbreyting, annars er bara best að reyna að halda sér að verkefnunum
það er víst nóg að gera í því núna, kveðja Sjana.Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2008 | 22:23
Vertu ávalt hress

Vertu alltaf hress í huga
hvað sem kann að mæta þér
lát ei sorg né böl þig buga
baggi margra þyngri er.
Vertu sanngjarn, vertu mildur
vægðu þeim sem mót þér braut
bið þinn guð um hreinna hjarta
hjálp í lífsins vanda og þraut.
Treystu því að þér á herðar
þyngri byrði ei varpað er
en þú hefur afl að bera
orka blundar, næg er þér.
Þerraðu kinnar þess er grætur
þvoðu kaun hins særða manns
sendu inn í sérhvert hjarta
sólageisla kærleikans.
Höfundur óþekktur:
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.10.2008 | 14:30
Allt á leið niður
Ef verðbólagan fer á fullt eins og verið er að spá verður ekki langt í að þessi seðill verði algengur, úff
. Það er líklega best að reyna að fara út að ganga og hressa sig við í góða veðrinu
, ég er búin að skila tveimur verkefnum í morgun, bara nokkuð gott að það er frá, en á eftir verkefnið um stjórnandan
. skoða það næstu daga, kveðja Sjana.Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.9.2008 | 13:29
Haustið að byrja;
Það má nú segja að sumarið leið fljótt og haustið er komið. Ég er komin í aftur í vinnuna hér fyrir austan, sem er ágætt
, eftir skemmtilegt verknám í sumar
og skólin að byrja, maður er að reyna að finna út úr hvaða námsbækur við þurfum að kaupa,
. það verður gamman að hittast í október, kveðja Sjana.Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.8.2008 | 18:04
Rúmlega hálfnuð,
Það er búið að vera í nógu að snúast, en nú er ég rúmlega hálfnuð með starfsnámið, sem sagt búinn með fimm vikur af átta vikum
svo það saxast á þetta,
það er samt mjög fínnt að vera á Landakoti, bara erfitt að vera vinna svona mikið í góða veðrinu sem nú gengur yfir landið, svo styttist í að skólinn byrji aftur
vonandi hafa allir það sem best, kveðja Sjana.Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.5.2008 | 22:00
vorferð
Ég fór í hina árlegu vorferð okkar starfsmanna í vinnuni í vikunni
og að þessu sinni fórum við á Stokseyri í kajakferð og svo í heitapottinn,sumir fóru reyndar á kaffihús á meðan
við byrjuðum reyndar á að koma við á Hellu og skoðuðum málverkasýningu sem ein úr vinnuni er með svaka flottar myndir,
það, svo var farið á Selfoss og nýja Sjúkrahúsið skoðað, eða við skoðuðum öldrunardeildina,
hún er rosalega flott ég fór að sjá eftir að hafa ekki sótt um að vera þar í sumar,
en það verður öruglega fínt á Landakoti það er bara allt voða gamalt og lúið þar
sérstaklega þegar maður sér svona nýtt og fínnt allt. En þetta stendur allt til bóta ég held að það eigi jafnvel að byrja á nýrri álmu hjá okkur, kanski
á næsta ári ef maður er bjartsýnn. kveðja Sjana.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.5.2008 | 19:35
niðurstaða úr prófi
Ég varð að prufa að fara á spámaður.is og skoða hvað hann hefði að segja, úr því að við verðum að bíða svona lengi eftir niðurstöðunum.
og þetta var svarið.
Sverðið táknar líðan þína, þú tekur á vandamálum líðandi stundar með því að skera þau niður í hluta í huganum samanborið við sverðið. Myndræn líking kemur skýrt fram sem áherslubreyting. þú virðist skilja kjarnann frá hisminu með því að ýta þeim málum sem vekja hjá þér ónot burt og losa þig endanlega við þau með innri styrk þínum. Sverð réttlætisins á greinilega vel við um þessar mundir ef myndrænn skilningur spilsins er dregin framm.Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2008 | 17:47
Vorhátíð
það er mikill léttir að prófin skulu vera búinn og hægt að snúa sér að ýmsu öðru, veðrið er búið að vera yndislegt úti í dag og í nógu að snúast í garðinum
en ég þarf að fara að drífa mig í að gera brauðrétti fyrir vorhátíð í skólanum á morgun,
það er bara gaman og svo sem síðustu forvöð þar sem litla barnið er að klára grunnskólan,
svo þá er sá áfangi búinn, eftir að hafa verið með barn í grunnskóla í 22ár hugsið ykkur hvað tímin líður
Það er eins gott að nýta tíman vel. Gangi ykkur öllum vel kveðja Sjana.Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Kristjana Jónsdóttir
Bloggvinir
331 dagur til jóla
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 118
- Frá upphafi: 8159
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


eythoringi
annaruth
margaudur
betajon
huldabina
svavahrund






