Starfsmannaferð

Bláa lóniðVið fórum í starfsmannaferð á laugardaginn, ferðinni var heitið í Bláa lónið, við komum samt við í Hveragerði og fórum þar í ratleik um bæinn, svo var aðeins farin rúntur um Reykjavík og í AK í Kópavogi þar sem við skoðuðum hjúkrunarvörur og annað slíkt, en svo var haldið áfram og drifið sig í Bláa lónið, það er ótrúleg afslöppun að svamla þar um, skilar sér vonandi í auknum afköstum, við vorum endurnærðar á eftir. og enduðum ferðinna með því að borða á Hafinu bláa (heldum okkur við blátt) rétt við Þorlákshöfn, sem sagt fínn dagur.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét Auður Óskarsdóttir

Aldeilis gaman að hrista saman hópinn, vel valdir staðir hjá ykkur  rétt að kvitta fyrir komuna, bara að hanga eftir næturvaktir og skoða bloggið. Komið þið ekki á fundinn á þriðjudaginn kl: 18, í Þrastalund? Það væri gaman að hitta ykkur kveðja Auður

Margrét Auður Óskarsdóttir, 4.11.2007 kl. 18:15

2 Smámynd: Þórunn Óttarsdóttir

hæ Sjana, var ekki fínt á hafinu bláa???? við sjúkraliðarnir á suðurnesjum fórum þar og borðuðum mjög fínan mat í hitteðfyrra, flottur staður þó hann sé svona "in the middle of nowhere"

Þórunn Óttarsdóttir, 4.11.2007 kl. 18:25

3 Smámynd: Kolbrún Pétursdóttir

Alltaf gaman að gera eitthvað skemmtilegt með góðum félögum, maður endurnærist á sál og líkama. kv, Kolbrún Pé.

Kolbrún Pétursdóttir, 5.11.2007 kl. 14:48

4 Smámynd: Kristjana  Jónsdóttir

 ég ætla að reyna að komast á fundin, ég veit ekki hvotr það gengur,  jú það var frábært á Hafinu bláa.        kveðja Sjana

Kristjana Jónsdóttir, 6.11.2007 kl. 08:53

5 Smámynd: Margrét Auður Óskarsdóttir

Endilega komið þið, og reyndu að fá Kristínu Ara. líka með, það væri gaman ef þið gætuð það. kveðja Auður

Margrét Auður Óskarsdóttir, 6.11.2007 kl. 12:09

6 Smámynd: Anna Ruth Antonsdóttir

Já það er endurnærandi að fara eitthvað skemmtilegt annað slagið.... þá kemur maður tvíefldur til baka, tilbúin í lærdóminn....gangi þér vel.. Kv Anna Ruth

Anna Ruth Antonsdóttir, 11.11.2007 kl. 08:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Kristjana Jónsdóttir

Höfundur

Kristjana Jónsdóttir
Kristjana  Jónsdóttir

Ég er sjúkraliði og bý á Hvolsvelli, ég á mann, fjórar dætur, tvö barnabörn  og eina kisu.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

218 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • apríl 2014 010
  • Júlí 2009 076
  • Júlí 2009 072
  • opps
  • Snjór 2008 002

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 769

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband