Vertu ávalt hress

þung byrði

Vertu alltaf hress í huga
hvað sem kann að mæta þér
lát ei sorg né böl þig buga
baggi margra þyngri er.

Vertu sanngjarn, vertu mildur
vægðu þeim sem mót þér braut
bið þinn guð um hreinna hjarta
hjálp í lífsins vanda og þraut.

Treystu því að þér á herðar
þyngri byrði ei varpað er
en þú hefur afl að bera
orka blundar, næg er þér.

Þerraðu kinnar þess er grætur
þvoðu kaun hins særða manns
sendu inn í sérhvert hjarta
sólageisla kærleikans.

Höfundur óþekktur:


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ruth Antonsdóttir

Já þetta eru orð í tíma töluð, við þurfum kannski að staldra aðeins við, hugsa og þakka fyrir það sem við höfum. Gangi þér vel Sjana.         kv Anna Ruth

Anna Ruth Antonsdóttir, 26.10.2008 kl. 19:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Kristjana Jónsdóttir

Höfundur

Kristjana Jónsdóttir
Kristjana  Jónsdóttir

Ég er sjúkraliði og bý á Hvolsvelli, ég á mann, fjórar dætur, tvö barnabörn  og eina kisu.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

241 dagur til jóla

Nýjustu myndir

  • apríl 2014 010
  • Júlí 2009 076
  • Júlí 2009 072
  • opps
  • Snjór 2008 002

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband