22.10.2008 | 22:23
Vertu ávalt hress
Vertu alltaf hress í huga
hvað sem kann að mæta þér
lát ei sorg né böl þig buga
baggi margra þyngri er.
Vertu sanngjarn, vertu mildur
vægðu þeim sem mót þér braut
bið þinn guð um hreinna hjarta
hjálp í lífsins vanda og þraut.
Treystu því að þér á herðar
þyngri byrði ei varpað er
en þú hefur afl að bera
orka blundar, næg er þér.
Þerraðu kinnar þess er grætur
þvoðu kaun hins særða manns
sendu inn í sérhvert hjarta
sólageisla kærleikans.
Höfundur óþekktur:
Um bloggið
Kristjana Jónsdóttir
Bloggvinir
33 dagar til jóla
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já þetta eru orð í tíma töluð, við þurfum kannski að staldra aðeins við, hugsa og þakka fyrir það sem við höfum. Gangi þér vel Sjana. kv Anna Ruth
Anna Ruth Antonsdóttir, 26.10.2008 kl. 19:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.